Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Fjármál borgarinnar verri en gefið hafði verið upp

14. júní 2006

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, nýr borgarstjóri, sagði á blaðamannafundi með Birni Inga Hrafnssyni í Ráðhúsinu í dag að í viðræðum sínum við embættismenn borgarinnar á undanförnum dögum hefði komið fram að ýmislegt í fjármálum borgarinnar væri öllu verra en gefið hefði verið upp af hálfu fráfarandi meirihluta fyrir nokkrum mánuðum.

„Við munum óska eftir því á næsta borgarráðsfundi að það verði gerð úttekt á fjármálum borgarinnar til og með 1. júní,“ sagði Vilhjálmur á fundinum og bætti við að ýmsar forsendur stæðust ekki.

„Ég get bent á það að við síðustu fjárhagsáætlun setti meirihlutinn það inn sem markmið fyrir árið 2007 til að geta lokað áætluninni hagræðingarkröfu upp á 600 milljónir. Þegar ég er að kynna mér það nákvæmlega hvernig eigi að spara 600 milljónir liggur ekkert fyrir um það, þessari tölu er bara skellt inn til að geta sýnt betri stöðu. Sagt við stofnanir sem sumar eru aðþrengdar en kannski misjafnlega mikið: Þið eigið að spara 600 milljónir, bara einhvern veginn og enn frekar á að spara 2008 og enn meira 2009. Þannig að þetta er náttúrulega engin fjármálastjórn,“ sagði Vilhjálmur.

Þegar hann var spurður hvort hann vildi meina að fráfarandi meirihluti hefði lagt fram rangar tölur, sagði Vilhjálmur að hann væri ekki að halda því fram en að þær tölur sem hann hefði séð kæmu honum á óvart. Hugsanlega hefði kostnaður vegna kjarasamninga orðið meiri en áætlað yrði en hann tók fram að hann héldi því ekki fram að um vísvitandi rangfærslur væri að ræða heldur trúlega einhvern misskiling.

Þá kom fram að ekki stæðu til skattalækkanir að öðru leyti en 25% lækkun á fasteignaskatti sem gengi yfir í þrepum á kjörtímabilinu.

frétt af www.mbl.is

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.