Huginn - félag ungra sjálfstćđismanna í Garđabć
Fréttir

Tap á rekstri RÚV

6. maí 2006

RíkisútvarpiđTap á rekstri Ríkisútvarpsins var 196,2 milljónir króna á síðasta ári samanborið við 49,7 milljónir árið áður. Segir stofnunin að stór hluti rekstarhallans sé vegna kostnaðarliða sem voru utan áætlunar, svo sem úrskurðar frá skattayfirvöldum vegna verktakagreiðslna. Hins vegar hafi rekstrarkostnaður orðið meiri en áætlað var. Í upphafi ársins 2005 var eigið fé RÚV 10,2 milljónir en var neikvætt um 186,2 milljónir í lok ársins.

Rekstrartekjur Ríkisútvarpsins á árinu 2005 voru 3555,3 milljónir og rekstrargjöld voru 3283,5 milljónir. Hagnaður af rekstri fyrir afskriftir varð 271,7 milljónir samanborið við 391 milljón árið áður. Afskriftir fastafjármuna voru 258,5 milljónir og jukust um 29,7 milljónir á milli ára. Þá urðu hrein fjármagnsgjöld 209,4 milljónir og jukust um 33,3 milljónir milli ára.

Öll fréttin á mbl.is.

Fréttabréf

Fáđu tilkynningar um atburđi og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.