Forgangsröðun gæluverkefna
Á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar, í byrjun febrúar, varsamþykkt að styrkja Garðasókn sem nemur fimmtán milljónum króna úr bæjarsjóði svo kirkjan geti keypt þrjátíu milljóna orgel. Það sem vakti athygli mína sérstaklega er að ekki einn einasti bæjarfulltrúi greiddi atkvæði á móti tillögunni. Þó heyra málefni kirkjunnar ekki undir bæinn heldur ríkið. Það skal þó ekki tekið af fulltrúa M-listans að viðkomandi sat hjá við afgreiðslu málsins, reyndar eftir að hafa í atkvæðagreiðslu stuttu áður lýst því yfir af einstakri snilld að það „að sitja hjá þýddi hið sama og að segja já“.Helstu rökin fyrir því að greiða Garðasókn þessar milljónir virðast vera þau að Garðabær hafi einhvern tímann áður styrkt kirkjuna þegar „einn besti flygill landsins“ var keyptur...
Lesa áfram
Aðalfundur
Aðalfundur Hugins (f.u.s í Garðabæ) verður haldinn miðvikudaginn 15. Febrúar 2012 á heimili félagsins að Garðatorgi 7, Garðabæ, og hefst klukkan 20.00.Dagskrá:1. Venjuleg aðalfundarstörf2. Lagabreytingar3. Önnur málStjórn Hugins í Garðabæ
Lesa áframSkráning á SUS-Þing í Hveragerði
Sambandsþing ungra sjálfstæðismanna fer fram í Hveragerði 26. – 28. ágúst næstkomandi. Á þinginu verður umræða og afgreiðsla ályktana málaefnastarfs og ný stjórn og forysta sambandsins kjörin til næstu tveggja ára. Huginn á, eins og önnur aðildarfélög sambandsins, rétt á að senda fulltrúa á þingið og skipa varafulltrúa...
Lesa áframAðalfundur Hugins
Aðalfundur Hugins (f.u.s í Garðabæ) verður haldinn miðvikudaginn 30. mars 2011 á heimili félagsins að Garðatorgi 7, Garðabæ, og hefst klukkan 20.00. Dagskrá:1. Venjuleg aðalfundarstörf2. Lagabreytingar3. Önnur mál Stjórn Hugins í Garðabæ
Lesa áframNý stjórn Hugins
Á aðalfundi Hugins, mánudaginn 27. september, var kjörin ný stjórn. Victor Ingi Olsen var kjörinn formaður en Sigurbjörn Ingimundarson sóttist ekki eftir endurkjöri. Auk Victors voru kjörin í stjórn þau Björn Már Ólafsson, Edda Sif Pálsdóttir, Hilmar Kristjánsson, Íris Káradóttir, Kristín Jónsdóttir, Margrét Bjarnadóttir, Viktor hrafn Hólmgeirsson og Þorsteinn Júlíus Árnason...
Lesa áframPub-Quiz Hugins
Miðvikudaginn 8. október síðastliðinn hélt Huginn vel heppnað Pub-Quiz í Sjálfstæðisheimilinu að Garðatorgi. Spyrill og spurningahöfundur kvöldins var Ari Guðjónsson stjórnarmeðlimur í Huginn og var þema spurninganna 'peningar'. Var mæting til fyrirmyndar og ljóst er að þessi kvöld eru komin til að vera í dagskrá Hugins...
Ferð í Alþingi
Föstudaginn 12. október fór Huginn í ferð í alþingi og veittu þingmennirnir Bjarni Benediktsson og Ragnheiður Elín Árnadóttir hópnum viðtöku. Byrjað var á því að skoða húsakynni Alþingis en að því loknu var haldið á skrifstofur þingmannanna þar sem boðið var upp á veitingar og sköpuðust fróðlegar og skemmtilegar umræður...
Milljarðar renna til manna sem stýrðu Framsókn
Mbl.is: Gísli Marteinn Baldursson sagði á fundi
borgarstjórnar sem nú stendur yfir að hann vonaðist til þess að REI-
málið svokallaða fengi farsælan endi og að menn hættu að pukrast í því
máli. „Ég vona að allir vilji ljúka þessu máli en stundum hvarflar að
manni að menn vilji það ekki...
Lagabreytingar á aðalfundi
Fyrir aðalfundi lágu eftirfarandi lagabreytingar en þær voru allar samþykktar. Lög félagsins á vefnum verða uppfærð á næstu dögum.Lagabreytingatillögur lagðar fyrir á aðalfundi Hugins 30. ágúst 2007Breyting á 5. gr. Lagt er til að fallið sé frá kröfu um skriflega umsókn til aðildar að félaginu...
Bjarni Ben heimsækir Hugin
Þriðjudaginn 3. febrúar næstkomandi stendur Huginn fyrir opnum fundi með Bjarna Ben. Fundurinn verður haldinn í félagsheimili Sjálfstæðisflokksins, Garðatorgi 7 og hefst stundvíslega klukkan 20:00.Bjarni mun að lokinni framsögu sinni sitja fyrir svörum. Að loknum fundi verður gestum boðið upp á léttar veitingar og fjörugar umræður.Allir velkomnir!
Hægri - 35 ára afmælisrit
Huginn hefur gefið út nýtt tölublað af Hægri í tilefni af 35 ára afmælis Hugins. Hægt er að nálgast ritið á pdf formi með því að fara inn á http://haegri.is/haegri/Haegri.pdf Ritinu verður einnig dreift í hús í Garðabæ
Huginn fagnar 35 ára afmæli sínu
Huginn, félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ, fagnar í dag 35 ára afmæli sínu. Á stofnfundi félagsins var fyrsti formaður þess kjörinn Smári Hermannsson. Á fundinum var lýst yfir almennri ánægju með nýtt félag og vonast var til þess að félagið yrði langra lífdaga auðið.Áherslumál félagsins hafa jafnan fylgt þjóðfélagslegri umræðu hverju sinni...
PubQuiz í kvöld
Í kvöld, fimmtudaginn 6. nóvember, heldur huginn annað PubQuiz vetrarins. Herlegheitin hefjast klukkan 21:00 í félagsheimili Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ, Garðatorgi 7. Spurningahöfundar eru engir aðrir en Hafliði Hjartarson og Ásgeir Einarsson en þeir eru algerir spurningagerðarmeistarar. Boðið verður upp á bjór fyrir þá sem hafa aldur til...
Hádegisverðurinn er aldrei ókeypis
Foreldrar grunnskólabarna í Garðabæ hafa látið í ljós óánægju með þann kostnað sem þau bera vegna skólamáltíða barnanna sinna. Óánægjuraddirnar stafa ekki síst af því að nágrannasveitarfélögin bjóða upp á ódýrari skólamáltíðir með niðurgreiðslum...
Ályktun um „frítt í strætó“
Huginn, félag ungra Sjálfstæðismanna í
Garðabæ, fagnar þeirri ákvörðun bæjarstjórnar Garðabæjar að draga sig út úr
verkefninu „frítt í strætó“. Þeirri stefnu skal ávallt framfylgt að
einstaklingar sem nýta sér ákveðna þjónustu skuli bera þungann af kostnaði
hennar sjálfir til að koma í veg fyrir óþarfa skattpíningu á bæjarbúa...
Aðalfundur Hugins
Aðalfundur Hugins, félags ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ, var haldinn í félagsheimili Sjálfstæðisflokksins við Garðatorg, miðvikudaginn 30. júlí síðastliðinn. Fjöldi fólks mætti á fundinn til að taka þátt í hefðbundnum aðalfundarstörfum. Sigríður Dís Guðjónsdóttir var kjörin formaður félagsins...
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.